Skutla á leið til geimstöðvar

Eftir mikla fjárhagsörðugleika undanfarin ár samhliða minnkandi vinsældum geimferða hefur bandaríska geimferðarstofnunin NASA brugðið á það ráð að senda héðan í frá einungis skutlur út í geiminn. Sally Fitzgerald verður fyrsta skutlan á jörðinni til að fara út fyrir gufuhvolfið. Hún tók þátt í fegurðarsamkeppninni Miss Wyoming í febrúar í fyrra og lenti í 7. sæti. Sally hefur áhuga á hestum og útvist. Hún mun fá nóg af því síðarnefnda í jómfrúarferð sinni en hennar hlutverk verður að vinna að lagfæringum utan á Explorer geimstöðinni í vetrarbraut 64A. Sally hefur málin 32-28-32 og vonar hún að þeir kostir munu hjálpa henni að fá sínu fram í geimnum. Ef þessi tilraun NASA misheppnast er nokkuð ljóst að höfuðstöðvar fyrirtækisins við Austurvöll verði rifnar til grunna á næstunni. Því sendum við Hríseyingar henni bestu óskir um gott gengi.

Sjá nánari fréttir um ferðina hér:
http://www.mbl.is/mm/frettir/taekni/2008/03/11/skutla_a_leid_til_geimstodvar/

0 Responses to “Skutla á leið til geimstöðvar”



  1. No Comments Yet

Leave a Reply